|
|
|
Við heimtum ennþá meiri aukavinnu! |
|
Því ef við einhverntímann eigum frí fylgir því |
|
fyllirí og hopp og hí um borg og bý. |
|
|
|
Við heimtum ennþá meiri aukavinnu! |
|
Því aukavinnan blessuð bætir og kætir oss, |
|
|
og endurnæring okkur færir. |
|
Ó, gefðu Guð, oss meira puð! |
|
|
|
Við heimtum ennþá meiri aukavinnu! |
|
Við viljum fá að djöflast dag og nótt títt og ótt, |
|
græða gnótt; það eflir sálarþrek og þrótt. |
|
|
|
Við heimtum ennþá meiri aukavinnu! |
|
Því það er okkar æðsta sæla’ að þræla og þræla, |
|
|
og þræla fram í rauðan dauðann. |
|
Ó, gefðu Guð, oss meira puð! |
|