Vornætur friður fyllir bæinn - í rökkurró. |
|
Sólin í vestri sest í æginn - í rökkurró. |
|
Og meðan rauðagulli reifast næturtjöld. |
|
Þú kemur til mín í rökkurró |
|
|
Manstu ekki vinur fyrsta fundinn - við Arnarhól. |
|
Mörg var þar okkar unaðsstundin - þá sest var sól. |
|
Við heyrðum svani kveða söng um ást og vor. |
|
Og sátum þar ein í rökkurró. |
|
|
Langt er nú liðið síðan þá, |
|
því leiðir skildu, og þú hvarfst----mér----frá. |
|
Veistu? Ég vakti marga nótt. |
|
Og vonaði og bað, af heitri þrá. |
|
|
Vinur í kvöld ég veit þú bíður - við Arnarhól. |
|
Tak mig í faðm því tíminn líður - og sest er sól. |
|
Því enn á vorið nógar vonir fyrir þau. |
|
Sem sitja hér ein í rökkurró. |
|
|