|
|
Ég man ennþá er ég keypti fyrsta gítargarminn minn |
|
þá fór ég með hann út í bílskúr og ég æfði mig um sinn. |
|
Allir heima þurft’að hlusta hundrað sinnum á mín lög. |
|
Mömmu sagði ég að seinna meir ég yrði frægur mjög. |
|
|
Ég keypti allar Bítlaplöturnar og hermdi eftir Paul, |
|
já ég fyllti allt af plötum, það fór allt í handaskol. |
|
Og ég sat við plötuspilarann og stældi sérhvern tón, |
|
alla poppara ég dáði og reyndi að líkjast þeim í sjón. |
|
|
|
Ó, rock ‘n roll ég gefið hef þér öll mín bestu ár, |
|
|
allt það besta er þú bauðst upp á ég kunni upp á hár. |
|
|
Heilu dagana ég sat og samdi ástarljóð til þín, |
|
|
þó þú breyttist dag frá degi og villtir mönnum sýn. |
|
|
Þú mátt ei lá mér að ég reyndi að ná þér. |
|
|
Árið sextíu og níu þegar Trúbrot var og hét |
|
þá ég elti þá á röndum, án mín fóru þeir ei fet. |
|
Og ég samdi marga texta um rotið gerviþjóðfélag. |
|
Viss um að ég myndi slá í gegn einn góðan veðurdag. |
|
|
|
Ó, rock ‘n roll ég gefið hef þér öll mín bestu ár, |
|
|
allt það besta er þú bauðst upp á ég kunni upp á hár. |
|
|
Og ég spilaði með hljómsveitum sem vegsömuðu þig |
|
|
þótt þú breyttist dag frá degi og lékir bara á mig. |
|
|
Þú mátt ei lá mér að ég reyndi að ná þér. |
|
|
Loks ég taldi mig það góðan að ég fór að starfa einn, |
|
fékk mér umboðsmann sem skildi mig og virtist hreinn og beinn. |
|
Og hann átti sand af seðlum, var með sambönd út um allt |
|
og við ræddum mína framtíð, það var bæði klárt og snjallt. |
|
|
Og svo fórum við til London, gistum tvöhundruð hótel. |
|
Jafnan plötufyrirtæki tóku okkur ekki vel. |
|
Mér var sagt ég hefði ekki hæfileika, með það heim ég flaug. |
|
En nú veit ég að frægðarbrautin er víst ekkert spaug. |
|
|
|
Ó, rock ‘n roll ég gefið hef þér öll mín bestu ár, |
|
|
allt það besta er þú bauðst upp á ég kunni upp á hár. |
|
|
Og nú á ég engan gítar því mér reynslan hefur kennt |
|
|
að ég er sem milljón unglingar, á það var mér bent. |
|
|
Þú mátt ei lá mér að ég reyndi að ná þér. |
|