Close
Add this song to My favourites Printable version
View chords

Hvar er húfan mín?

Song composer: Thorbjörn Egner


(Úr Kardimommubænum)
Hvar er húfan mín? Hvar er hempan mín?
Hvar er falska gamla fjögra gata flautan mín?
Hvar er úrið mitt? Hvar er þetta’ og hitt?
Hvar bláa skyrtan, trefillinn og beltið mitt?
Ég er viss um að það var hér allt í gær.
Sérðu þvottaskál? Sérðu þráð og nál?
Sérðu hnífinn sérðu diskinn og mitt drykkjarmál?
Sérðu pottana og seglgarnsspottana?
Sérðu heftið sem ég las um Hottintottana?
Ég er viss um að það var hér allt í gær.
Sérðu töskuna? Sérðu flöskuna?
Sérðu eldinn, sérðu reykinn, sérðu öskuna?
Hvar er peysan blá? Hvar er pyngjan smá?
Hvar er flísin, sem ég stakk í mína stórutá?
Ég er viss um að það var hér allt í gær.
Hvar er hárgreiðan? Hvar er eldspýtan?
Hvar er Kasper, hvar er Jesper, hvar er Jónatan?
Þetta’ er ljótt að sjá, alltaf leita má.
Hvar er kertið sem við erfðum henni ömmu frá?
Ég er viss um að það var hér allt í gær.



    Go back
Nothing has been written about this song.
You must be a registered user to be able to post a message