Close
Add this song to My favourites Printable version
View chords

Vornótt í Eyjum

Song composer: Sigurður Óskarsson
Lyrics author: Þorsteinn Lúter


Í Eyjunum lífsgleðin ljómar 
er ljósbjört þar vornóttin skín, 
og lífsvakans aflmiklu ómar 
þeir ástfangnir berast til þín. 
Fuglarnir kliða við kletta 
og kafa í sædjúpin köld, 
en hafaldan lognværa létta 
sér leikur við þá í kvöld. 
Ég horfi á himininn loga 
hafið og spegilslétt sund, 
við heiðríkan himinsins boga 
á hrífandi góðviðrisstund. 
Já Eyjan mín brosið þitt bjarta 
og blíðan þín heillaði mig. 
Ég gaf þér strax hug minn og hjarta 
og hét því að elska þig.



    Go back
Nothing has been written about this song.
You must be a registered user to be able to post a message