Ljótu hálfvitarnir – Stóri dagurinn |
|
|
|
|
|
|
Ég mundi ekki eftir henni mömmu svona kátri |
|
|
Mér leist ekkert á það þegar inn í búr hún gekk |
|
|
Hérna færðu litli kútur haug af súru slátri |
|
|
Því heillin mín í dag þú átt að byrj’í fyrsta bekk |
|
|
Því heillin mín í dag þú átt að byrj’í fyrsta bekk |
|
|
|
Ég kunni ekki plús og mínus kunni ekki að stafa |
|
|
Kunni ekki litina og benti mömm’á það |
|
|
Líklega þá vilja börnin lítið með mig hafa |
|
|
Og lemja mig í klessu eða tak’í nasabað |
|
|
Og lemja mig í klessu eða taka í nasabað |
|
|
|
Mamma tók þetta ekki gilt og mig í bílinn leiddi |
|
|
Margoft sagðist ekki nenna að hlusta á þetta suð |
|
|
Voða sætur sagði hún og vandlega mér greiddi |
|
|
Og vandræði þú leysir með að hlusta bar’á guð |
|
|
Og vandræði þú leysir með að hlusta bar’á guð |
|
|
|
Lengst í burt hún keyrði svo og leit ekki til baka |
|
|
Lét mig ekki einu sinni hafa nestið mitt |
|
|
Þar var einmitt rúgbrauðssneið og risa skúffukaka |
|
|
Og rúsinur já þegar ég er búinn með allt hitt |
|
|
Og rúsinur já þegar ég er búinn með allt hitt |
|
|
|
Ég feiminn gekk upp tröppurnar með fjólubláar lúffur |
|
|
Furðu erfitt lífið þegar allt á móti blæs |
|
|
Konan sagði að fötin ættu að far’í merktar skúffur |
|
|
Ég fann bara aldrei mína enda ekki orðinn læs |
|
|
Ég fann bara aldrei mína enda ekki orðinn læs |
|
|
|
Svo fór ég inn í stofu númer 508 |
|
|
Með fiðring bæði og ógleði í litla mallanum |
|
|
Furðulegur bæði var og frekar utangátta |
|
|
Þeim fannst ég vera skrýtinn svon’í útigallanum |
|
|
Þeim fannst ég vera skrýtinn svon’í útigallanum |
|
|
|
Þau hlógu að mér og allt í einu hafði ég víst pissað |
|
|
Heilmikið í buxurnar og grátandi út gekk |
|
|
Mamma sko ég sagði þér að vel ég ósköp viss’að |
|
|
Ég væri ekki tilbúinn að kenna fyrsta bekk |
|
|
Ég væri ekki tilbúinn að kenna fyrsta bekk |
|
|
Ég væri ekki tilbúinn að kenna fyrsta bekk |
|
|
|
|