Close
Add this song to My favourites Printable version
View chords

Kvöldið er fagurt



Kvöldið er fagurt sól er sest
og sefur fugl á grein.
Við skulum koma vina mín
og vera saman ein.
            Ég þekki fagran lítin lund
            hjá læknum upp við foss
            þar sem glóa gullin blóm 
            þú gefur heitan koss.
Þú veist að öll mín innsta þrá
er ástarkossinn þinn.
Héðan af aðeins yndi ég 
í örmum þínum finn.
Ég leiði þig í lundinn minn
mín ljúfa, komdu nú.
Jörðin þó eigi ótal blóm
mín eina rós ert þú.



    Go back
icon/sim16.gifÁrmann Alonso
31.12.2005
er hægt að fá gripin?
You must be a registered user to be able to post a message