Close
With pictures of chords Without chords Add this song to My favourites Printable version
View chords

Dalakofinn

Song composer: Arch. Joyce
Lyrics author: Davíð Stefánsson


Am Dm E7 
Vertu hjá mér, Dísa, meðan kvöldsins klukkur hringja 
Am G7 E7 
og kaldir stormar næða um skóg og eyðisand; 
Am E7 Am C7 E7 
þá skal ég okkur bæði yfir djúpið dökka syngja 
Am Ebdim Am Dm Am E7 Am 
heim í dalinn, þar sem ég ætla' að byggja og nema land. 
Kysstu mig ...kysstu mig. Þú þekkir dalinn Dísa, 
þar sem dvergar búa í steinum, og vofur læðast hljótt 
og hörpusláttur berst yfir hjarn og bláa ísa, 
og huldufólkið dansar um stjörnubjarta nótt. 
Og meðan blómin anga og sorgir okkar sofa 
er sælt að vera fátækur, elsku Dísa mín, 
og byggja sér í lyngholti lítinn dalakofa 
við lindina, sem minnir á bláu augun þín. 
Ég elska þig; ég elska þig og dalinn, Dísa 
og dalurinn og fjöllin og blómin elska þig. 
í Norðri brenna stjörnur, sem veginn okkur vísa, 
og vorið kemur bráðum ... Dísa, kysstu mig



    Go back
Nothing has been written about this song.
You must be a registered user to be able to post a message