Guð lét fögur vínber vaxa. |
|
vildi gleðja dapran heim. |
|
Gefið hafði hann gnægðir axa |
|
góðar hjarðir, nógan seim. |
|
Þreyttust menn við bú að baksa |
|
blóðið var svo dökkt í þeim |
|
Þá lét drottinn vínber vaxa |
|
vildi gleðja dapran heim. |
|
|
Breiddist iðgrænn vafningsviður |
|
við hans boð um aldinreit. |
|
Höfgir klasar héngu niður. |
|
Himinsól á skrautið leit. |
|
Glumdi í lofti gleðikliður, |
|
glóðu berin rauð og heit. |
|
Breiddist iðgrænn vafningsviður |
|
við hans boð um aldinreit. |
|
|
Gleðjist, sagði hann, gullnar veigar |
|
gera blóðið rautt og létt; |
|
undan þeim hið illa geigar, |
|
ef að þeirra er notið rétt. |
|
Angur, þreyta og illir beygar |
|
undan flýja á harða sprett. |
|
Gleðjist, sagði hann, gullnar veigar |
|
gera blóðið rautt og létt; |
|
|
Aldrei sagði þengill þjóða: |
|
Þú skalt ekki bragða vín. |
|
Öllum vildi hann ætíð bjóða |
|
|
Smána jafnt hans gáfu góða |
|
Goodtemplar og fyllisvín. |
|
Aldrei sagði þengill þjóða: |
|
Þú skalt ekki drekka vín. |
|
|
Ennþá blómgast iðgrænn viður, |
|
ennþá blikar gullin veig. |
|
|
|
Enn má sætur söngva kliður |
|
senda í Niflheim drunga og geig. |
|
Ennþá blómgast iðgrænn viður, |
|
ennþá blikar gullin veig. |
|