(Úr Silfurtúnglinu e. Halldór Laxnes) |
|
|
Hvert örstutt spor var auðnuspor með þér, |
|
hvert andartak er tafðir þú hjá mér |
|
við sólskinsstund og sæludraumur hár |
|
minn sáttmáli við Guð um þúsund ár |
|
|
|
Hvað jafnast á við andardráttinn þinn? |
|
Hve öll sú gleði er fyrr naut hugur minn |
|
er orðin hljómlaust utangátta tóm |
|
hjá undrinu að heyra þennan róm |
|
|
|
Hjá undri því að líta lítinn fót, |
|
í litlum skóm, og vita að heimsins grjót, |
|
svo hart og sárt er honum fjarri enn, |
|
og heimsins ráð sem brugga vondir menn. |
|
|
|
Já vita eitthvað anda hér á jörð, |
|
er ofar standi minni þakkargjörð, |
|
í stundareilífð eina sumarnótt. |
|
Ó alheimsljós, ó mynd sem hverfur skjótt. |
|