Close
Without images of chords With chords Add this song to My favourites Printable version
Eb
EADgbe
GCFbbdg 3.fr
AbC#F#bebab
ADGcea
BbEbAbc#fbb
BEAdf#b
Bb
EADgbe
FBbEbabcf
F#BEac#f#
GCFbbdg
AbC#F#bebab
ADGcea
Ab
EADgbe
FBbEbabcf
F#BEac#f#
GCFbbdg
AbC#F#bebab
ADGcea
View chords

Kútter Sigurfari

Song composer: Írskt þjóðlag
Lyrics author: Jónas Árnason


Þótt ég sestur nú sé í helgan stein 
og minn stakk ég hafi hengt á snaga,
ennþá man ég glöggt árin sem ég var á
Kútter Sigurfara forðum daga.
 
Úrvals kappasveit á því skipi var 
karlar þessir kunnu fisk að draga.
Enginn skóli bauðst ungum manni betri en 
kútter Sigurfari forðum daga.
 
Þessi kappasveit, þetta frækna lið
kunni líka voðum vel að haga.
Silgdi skipa hæst, silgdi skipa glæstast
kútter Sigurfari forðum daga.
 
Lagst var miðin á landið allt um kring:
undir Jökli, útaf Gerpi og Skaga.
Oft var dreginn þá afli býsna vænn á 
kútter Sigurfara forðum daga.
 
Gegnum veðrafár, gegnum manndrápssjó
alltaf slapp hann, - það var segin saga.
Ekkert vissu menn annað eins happaskip og
kútter Sigurfara forðum daga.
 
Dátt var hlegið oft, dátt var sungið oft,
mörg var líka kveðin kátleg baga,
þegar haldið var heim úr góðri ferð á
kútter Sigurfara forðum daga.
 
Þótt ég sestur nú sé í helgan stein 
og minn stakk ég hafi hengt á snaga, 
ennþá man ég glöggt árin sem ég var á 
kútter Sigurfara forðum daga.



    Go back
Nothing has been written about this song.
You must be a registered user to be able to post a message