|
|
|
Dagar víns og rósa og rómantískra nátta |
|
reyndust skammlífari en þau vildu bæði. |
|
Nú rignir tárum og tryggðin er dimmur skógur |
|
og ástin er hjá öðru fólki í fæði. |
|
|
Dagar kulda og gremju ganga hér um húsið, |
|
gaddavírinn kaupa, víglínan er dregin. |
|
Að morgni þau mætast og sáttmálinn er rofinn, |
|
mæla ekki orð og ganga út á veginn. |
|
|
|
Húsdýragarðinn pabbarnir ganga, |
|
|
fleiri en einn laugardaga langa. |
|
|
Einmana hjörtu og hópurinn labbar, |
|
|
stórir og litlir stimpilklukkupabbar. |
|
|
Það er barist um börnin og orðin ekki spöruð |
|
og fráskyldum feðrum smalað er í réttir. |
|
Hún fékk allt, þeir þora ekki að kvarta |
|
nema á börunum blóðugar segja fréttir. |
|
|
Upp á náð og miskunn þeir mega hitta börnin |
|
og mæna á húsið sem þeir byggðu forðum. |
|
Á McDonalds fara með börnin sín að borða |
|
með brotið sjálfstraust og höfuðfylli af orðum. |
|
|
|
Húsdýragarðinn pabbarnir ganga, |
|
|
fleiri en einn laugardaga langa. |
|
|
Einmana hjörtu og hópurinn labbar, |
|
|
stórir og litlir stimpilklukkupabbar. |
|
|
Dagar víns og rósa og rómantískra nátta |
|
reyndust skammlífari en þau vildu bæði. |
|
Í skotlínunni börnin lenda saklaus |
|
og hjörtun verða vígvallarsvæði. |
|
|
|
Húsdýragarðinn pabbarnir ganga, |
|
|
fleiri en einn laugardaga langa. |
|
|
Einmana hjörtu og hópurinn labbar, |
|
|
stórir og litlir stimpilklukkupabbar. |
|