|
|
|
Á sjó - Þeir sóttu byr og sigldu um höfin blá |
|
|
Þeir eru fræknir fiskimenn og fást við úfinn sjá |
|
|
Milli hafna um heiminn þeir halda sína leið |
|
|
Á sjó - þeir sækja enn og og sigla um höfin breið |
|
|
Fræknir sjómenn fyrrum komu að frálsri Íslands strönd |
|
Þeir héðan sigldu um höfin djúp og herjuðu ókunn lönd |
|
En síðan margir sægarpar siglt hafa landi frá |
|
Bátar þeirra borist hafa bylgjum sjávar á |
|
|
|
|
Þeir staðið hafa í stormi og stórsjó dag og nótt |
|
Móti bylgjum frosts og fanna fast þeir hafa sótt |
|
Er skipið öslar öldurnar þá ólgar þeirra blóð |
|
Þeir eru sannir sjómenn til sóma okkar þjóð |
|
|
|
|
|
|
Þeir sífellt fara um sjávarleið og sigla varning heim |
|
Fiskinn góða færa að landi við fögnum öllum þeim |
|
Þeir lifa djarft á landi og sjó í leit og hverri þraut |
|
Þeir eru hafsins hetjur þeim heiður falli í skaut |