Svífur yfir Esjunni sólroðið ský, |
|
sindra vesturgluggar, sem brenni í húsunum. |
|
Viðmjúk strýkur vangana vorgolan hlý, |
|
vaknar ástarþráin í brjóstum á ný. |
|
|
|
Kysst á miðju stræti er kona ung og heit, |
|
|
keyra Rúntinn piltar sem eru í stelpuleit. |
|
|
Akrafjall og Skarðsheiði eins og fjólubláir draumar. |
|
|
Ekkert er fegurra en vorkvöld í Reykjavík. |
|
|
Tjörnin liggur kyrrsæl í kvöldsólarglóð, |
|
kríurnar þótt amstri og bjástri í hólmanum. |
|
Hjúfra sig á bekkjunum halir og fljóð, |
|
hlustar skaldið Jónas á þrastanna ljóð. |
|
|
|
Dulin bjarkarlimi á dúnsins mjúku sæng, |
|
|
dottar andamóðir með höfuð undir væng. |
|
|
Akrafjall og Skarðsheiði eins og fjólubláir draumar. |
|
|
Ekkert er fegurra en vorkvöld í Reykjavík. |
|
|
Hljótt er kringum Ingólf og tæmt þar hvert tár, |
|
tryggir hvíla rónar hjá galtómum bokkunum. |
|
Svefninn er þeim hóglega siginn í brár, |
|
sunnanblær fer mildur um vanga og hár. |
|
|
|
Ilmur er úr grasi og angan moldu frá, |
|
|
aftansólin purpura roðar vestursjá. |
|
|
Akrafjall og Skarðsheiði eins og fjólubláir draumar. |
|
|
Ekkert er fegurra en vorkvöld í Reykjavík. |
|
|
|
|
|