Stóð ég úti’ í tunglsljósi, stóð ég úti’ við skóg; |
|
stórir komu skarar, af álfum var þar nóg; |
|
blésu þeir á sönglúðra’ og bar þá að mér fljótt |
|
og bjöllurnar gullu á heiðskírri nótt |
|
og bjöllurnar gullu á heiðskírri nótt. |
|
|
Hleyptu þeir á fannhvítum hestum yfir grund, |
|
hornin jóa gullroðnu blika við lund; |
|
eins og þegar álftir af ísa grárri spöng |
|
fljúga suður heiði með fjaðraþyt og söng, |
|
fljúga suður heiði með fjaðraþyt og söng, |
|
|
Heilsaði’ hún mér drottningin og hló að mér um leið, |
|
hló að mér og hleypti hestinum á skeið. |
|
Var það út af ástinni ungu, sem ég ber? |
|
Eða var það feigðin, sem kallar að mér? |
|
Eða var það feigðin, sem kallar að mér? |
|
|