Close
Without images of chords Without chords Add this song to My favourites Printable version
G
EADgbe
FBbEbabcf
F#BEac#f#
GCFbbdg
AbC#F#bebab
ADGcea
D
EADgbe
FBbEbabcf
F#BEac#f#
GCFbbdg
AbC#F#bebab
ADGcea
View chords

Bílavísur

Song composer: Holmes
Lyrics author: Jón Sigurðsson


G 
„Ertu að koma?“ „Já, elskan mín góða
alveg hreint á mínútunni. Ha – ertu í nýjum bíl?
D 
Alveg ertu ágætur, 
já, agalega sætur
að ætla að bjóða mér, það er alveg hreint í stíl.
G 
Og ef að það snjóar, 
þá eru til nógar
keðjur, sem að koma okkur óhultum alla leið.
D 
Elskan hann Dóri 
minn sterki og stóri
G 
hann stýrir svo vel, þótt gatan sé ekki greið.
G 
Ó, þarna er hann, já flott skal það vera,
Fordinn módel 19 hundruð og ég veit ekki hvað.
D 
Upp í hann stíg ég.  
Á ástarvængjum flýg ég
upp í Mosfellssveit í ævintýraleit.
G 
Með handtösku stóra 
ég hallast að Dóra.
Æ, gormurinn í framsætinu stakk mig á versta stað.
D 
Það er nú svona 
að þreyja og vona
G 
en þetta lagast allt, Dóri minn sér um það.
G 
Keðjan er slitin, það skellur í bílnum.
Skríddu undir bílinn, Dóri, greyjið mitt flýttu þér.
D 
Ó, je minn góður, 
ertu alveg óður,
þarna reifstu sokkinn minn, álfurinn þinn.
G 
Ég fer aldrei út með þér 
aftur, nei það sver ég.
Ég hef aldrei á ævi minni ekið með slíkum draug.
D 
Ó, núna springur 
og í honum syngur;
G 
á endanum hann stingst o’ní moldarhaug.“



    Go back
Nothing has been written about this song.
You must be a registered user to be able to post a message