Til eru fræ, sem fengu þennan dóm: |
|
að falla í jörð, en verða aldrei blóm. |
|
Eins eru skip, sem aldrei landi ná, |
|
og iðgræn lönd, er sökkva í djúpin blá, |
|
|
og von, sem hefur vængi sína misst, |
|
og varir, sem að aldrei geta kysst, |
|
og elskendur, sem aldrei geta mæst, |
|
og aldrei geta sumir draumar ræst. |
|
|
|
Til eru ljóð, sem lifna og deyja í senn, |
|
|
og lítil börn, sem aldrei verða menn. |
|