Veistu að ég bíð þín og vaki hér og bíð þín |
|
Bak við grænar rúður og ryðbrunnar skrár. |
|
Bak við brúnar heiðar, bak við dag og ár |
|
|
Enginn hefur séð mig, en allir hafa þráð mig |
|
Svarið eið og söðlað, hinn sviffráa jó |
|
Hrakist vega villtir um vindkaldan skóg |
|
|
|
Úlfar hafa elt þá og álfar hafa tælt þá |
|
|
Töfrað þá og tafið við tafl og gull og vín |
|
|
Flestir hafa gleymt að þeir fóru að leita mín |
|
|
Nóttin hefur náð þeim og nornir tekið við þeim |
|
Ekki skaltu hræðast þann álagadóm. Þann álagadóm |
|
Ein átt þú að eiga mitt unga lilju blóm |
|
|
Óhrein verður leið þín, en þú manst ég bíð þín |
|
Fram hjá hamra hengjum og húmrauðri gátt |
|
Svífa svanir þínir með söng í rétta átt |
|
|
|
Ein og sóllaus sit ég, en sæl, því aldrei get ég |
|
|
Trúað öðru en ósk mín og ást þín nái mér |
|
|
Fallir þú og týnist, þá fölna ég með þér |
|
|
Hrekkur lokað hlið mitt, það hringja klukkur, blóð mitt |
|
Leitar þín í leiðslu, það loga stjörnur tvær |
|
Við brjóst mín, bláar stjörnur, ég brosi og kyssi þær |
|
|
Vakir, vakir þrá mín og von mín og trú mín |
|
Bak við þrár og þrautir og þokuslunginn veg |
|
Bak við óð og ástir, ástin, þú og ég |
|